Lífið

Metallica í hljóðveri

Í hljóðveri Rob Trujillo, bassaleikari Metallica, segir að sveitin sé þegar farin að vinna að næstu plötu.Nordicphotos/Getty
Í hljóðveri Rob Trujillo, bassaleikari Metallica, segir að sveitin sé þegar farin að vinna að næstu plötu.Nordicphotos/Getty
Meðlimir Metallica eru þegar farnir að vinna að næstu plötu sveitarinnar. Bassaleikarinn Rob Trujillo greindi frá þessu í viðtali og sagði drengina hafa verið „upptekna við að semja og taka upp“.

Eins og tónlistaráhugafólk veit er Metallica um þessar mundir að kynna nýja plötu sem sveitin gerði með Lou Reed, Lulu. Platan hefur fengið afar misjafnar viðtökur og kunna einhverjir að spyrja sig hvort Metallica-menn ætli að sökkva sér í vinnu til að gleyma vonbrigðunum.

„Við erum með tvö ný lög sem við höfum verið að vinna að síðustu tvær vikurnar og erum byrjaðir að semja fyrir næstu Metallica-plötu. Við erum búnir að vera í hljóðverinu með Rick Rubin og verðum við upptökur bróðurpart næsta árs.“

Trujillo sagði jafnframt að rokkaranna biði mikil vinna. „En það frábæra er að við erum þegar komnir af stökkpallinum og erum farnir að synda. Þetta er að gerast.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.