Gagnrýnir lánveitingar til Gagnaveitu Reykjavíkur 18. ágúst 2011 18:42
Fulltrúi í stjórn Orkuveitunnar gagnrýnir lánveitingar til Gagnaveitu Reykjavíkur og segir það skjóta skökku við að á meðan niðurskurðahnífnum er beitt á Orkuveitu Reykjavíkur skuli hundruðum milljóna dælt í Gagnaveituna. Í nýjustu fundargerð stjórnar OR er greint frá samningsviðræðum um lán Landsbankans til Gagnaveitu Reykjavíkur sem áður hét lína net. Kjartan Magnússon, greiddi einn atkvæði gegn tillögu um lánið. „Orkuveitan starfar nú eftir neyðaráætlun í fjármálum og það hefur öllu verið snúið viðí fyrirtækinu og reyndar öllum borgarrekstrinum til að spara. Og meðal þess sem hefur verið skorið niður eru framkvæmdir vegna endurnýjunar og aðhalds í veitukerfum fyrirtækisins þar sem margt er komið á tíma. Þar er teflt á tæpasta vað að mínu viti," segir Kjartan sem telur það því ótækt að á meðan haldi Gagnaveita Reykjavíkur áfram framkvæmdum af fullum krafti víða um land. Kjartan gagnrýnir einnig í bókun sinni að stjórn Orkuveitunnar hafi samþykkt mögulega seinkun á afborgunum af láni Orkuveitunnar til Gagnaveitu Reykjavíkur en Gagnaveitan skuldar Orkuveitu Reykjavíkur fimm, til sex milljarða. „Sá möguleiki er fyrir hendi að afborganir af miklum lánum Orkuveitunnar til Gagnaveitunnar verði seinkað. Ég tel það óviðunandi á meðan Orkuveitan þarf á öllum sínum tekjum að halda vegna þess að endurfjármögnun fyrirtækisins var klúðrað með eftirminnilegum hætti síðasta vetur." Upplýsingar um upphæð lánsins til Gagnaveitunnar fengust ekki uppgefnar í dag. Hvorki frá Orkuveitunni né Gagnaveitu Reykjavíkur og hvílir trúnaður á minnisblöðum sem gætu varpað ljósi á málið. Samkvæmt heimildum fréttastofu er um að ræða aukafjármögnun til Gagnaveitunnar upp á nokkur hundruð milljónir króna.Er eðlilegt að leyndarhjúpur hvíli á slíkum upplýsingum. „Nei, mér finnst eðlilegt að allar slíkar upplýsingar séu dregnar fram og kynntar almenningi."
Mest lesið Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Innlent Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Innlent Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Innlent Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Innlent Lést af völdum langvinnrar lungateppu og astma Erlent Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Innlent Fjöldi barna stunginn á Norðvestur-Englandi Erlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Íslendingur handtekinn vegna skemmdarverka í Mexíkó Erlent Fleiri fréttir Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Fékk 549.127 krónur í afslátt af bílnum Hringvegurinn opnaður en ökumenn beðnir um að sýna tillitssemi Handteknir við að stela dósum úr gám Þrír drengir handteknir eftir rúðubrot og átök við lögreglu Vatnshæð lækkar áfram en hlaupið ekki alveg búið Málum vegna dyrabjöllumyndavéla muni fjölga Síðasta ávarp Guðna í embætti: „Þið eruð geggjuð!“ Rannsaka möguleika til kolefnisförgunar í Hvalfirði „Þó nokkur aðgerð“ að sækja göngumanninn sem steig í hver Hringvegurinn opinn á ný Öll fjögur hlaupin undir Mýrdalsjökli komið að óvörum Sjá meira