Innlent

Ólykt í borginni - olíutankur opnaður í rangri vindátt

Mynd úr safni
Ólyktin sem sumir borgarbúar hafa fundið í dag er til komin vegna þess að verið er að þrífa olíutank í Örfirisey. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu stafar fólki ekki hætta af þessu, aðeins óþægindi vegna lyktarinnar.

Ákveðnar reglur eru um í hvaða vindátt má opna tankana en í dag virðist það hafa verið gert í rangri vindátt, og er það ástæða þess að lyktin finnst í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×