Innlent

Fræðimenn í hverju rúmi

Erna Hauksdóttir
Erna Hauksdóttir
Hvert hótelrými á höfuðborgarsvæðinu og víðar mun vera bókað helgina 25. til 27. ágúst, en þá verður í Reykjavík fjölmennasta alþjóðlega ráðstefna Íslandssögunnar.

Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands verður þá gestgjafi evrópskra stjórnmálafræðinga, og eru skráðir þátttakendur á þriðja þúsund talsins. Nokkrir gestir voru fullseinir að bóka sig og leita skipuleggjendur nú gistirýmis fyrir þá.

Erna Hauksdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar, segir ekki óalgengt að hvert hótelherbergi sé upptekið í Reykjavík þegar ráðstefnur eru.

- kóþ




Fleiri fréttir

Sjá meira


×