Innlent

Hanna íbúðabyggð í Vilníus

Ragnar Auðunn Birgisson
Ragnar Auðunn Birgisson
THG Arkitektar fengu fyrstu verðlaun fyrir tillögu sína um hönnun og skipulag íbúðabyggðar í úthverfi Vilníus, höfuðborgar Litháens. „Fjárfestar í Vilníus komu að máli við okkur og báðu okkur um að taka þátt í þessari samkeppni,“ segir Ragnar Auðunn Birgisson, arkitekt hjá THG Arkitektum.

Ragnar segir að verðlaunin auki á bjartsýni um að eitthvað sé að gera fyrir arkitekta, bæði heima og erlendis. „Við erum að flytja inn smá vinnu,“ segir Ragnar og bætir við að fullur hugur hafi verið í fjárfestunum að fylgja eftir tillögunum.

- mmf




Fleiri fréttir

Sjá meira


×