Innlent

Þjófur staðinn að verki í Skipholti

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gómaði þjóf í Skipholti í Reykjavík í nótt þar sem hann var að brjótast inn í bíla. Hún fékk tilkynningu um grunsamlegt athæfi mannsins, og stóð hann að verki.

Hann var með þýfi í fórum sínum, meðal annars farsíma og mikið af skiptimynt. Hann var vistaður í fangageymslum og verður yfirheyrður í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×