Innlent

Fjármálaráðherra vonar að fasteignaverð kalli ekki á verðbólgu

Heimir Már Pétursson. skrifar
Fjármálaráðherra segir hækkandi húsnæðisverð auka á verðbólguna og vonar að húsnæðisverð sveiflist ekki of hratt upp á við. Hann telur alltaf ástæðu til að hafa áhyggjur af víxlhækkunum launa og verðlags en óttast ekki áhrif boðaðra verðhækkana á mjólkurvörum.

Mjólk og mjókurvörur munu samkvæmt ákvörðun verðlagsnefndar hækka um 4,25 til 6,7 prósent um næstu mánaðamót og telur hagfræðingur Alþýðusambandsins það vera umfram forsendur kjarasamninga, skerða kaupmátt og auka verðbólgu.

„Auðvitað höfum við alltaf áhyggjur og við höfum áhyggjur af því að verðbólgan hefur aðeins þokast upp á við. En þetta eitt og sér vegur nú ekki þungt í því. Hér er væntanlega um að ræða einhverja uppsafnaða þörf og hér er um verðlagsákvörðun að ræða, sem eru orðnar fátíðar. Síðan er spurning hversu lengi þessi verðlagning endist inn í framtíðina," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.

Innlend matvara hafi ekki átt þátt í hækkun verðbólgu undanfarin misseri. Gengi krónunnar hafi gefið eftir frá áramótum og innflutt hrávara eins og korn og olíuvörur hafi hækkað í verði á heimsmarkaði.

-Og þar tala menn um að álögur á bensíni séu orðnar allt of miklar. Væri ekki lag núna að lækka þær álögur?

„Nei, nú er það þannig að bensínverð er með því lægsta sem sem fyrirfinnst í Evrópu hér á Íslandi. Það er mun lægra en á hinum Norðurlöndunum. Það kostar frá 15 upp í 50 til 60 krónum meira bensínlitrinn hjá frændum okkar á hinum Norðurlöndunum. Skatthlutfallið er lægra hér en á hinum Norðurlöndunum. Við erum undir helmingi af útsöluverðinu. Það helgast af því af því að bensín- og olíugjöld eru föst í krónutölu," segir fjármálaráðherra.

Nú sé mikið þrýst á vegaframkvæmdir og gjöld á eldsneyti standi undir þeim framkvæmdum. Hins vegar hafi hækkun húsnæðisverðs að undanförnu haft áhrif til hækkunar verðbólgu.

„Ég held að það sé heldur ekki æskileg þróun að þar verði miklar sveiflur eða snöggar. En að sjálfsögðu er það jákvætt að það er að lifna yfir fasteignaviðskiptum og verðlækkunarhrinan er hengin yfir," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×