Innlent

Heimagert skotvopn fannst - eigandinn talinn tengdur Hells angels

Mynd Lögreglan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gær rúmlega tvítugan mann eftir að skotvopn fannst við húsleit í Hafnarfirði.

Við húsleitina fannst heimagerð byssa og 22 kalíbera skotfæri, ásamt litilræði af fíkniefnum. Lögregla telur hugsanlegt að skotvopnið hafi verið notað til að vinna skemmdarverk á ökutæki á Seltjarnarnesi í síðustu viku.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að á staðnum hafi einnig fundist gögn sem tengjast ætluðum meðlimum vélhjólahópsins Hells Angels og er hinn handtekni grunaður um að tengjast hópnum.

Mynd Lögreglan
.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×