Innlent

Amfetamínið var í ferðatösku

Karlmaður á fertugsaldri sem situr nú í gæsluvarðhaldi vegna fíkniefnasmygls var með fjögur kíló af amfetamíni í ferðatösku þegar hann var tekinn við reglubundið eftirlit í Sundahöfn.

Maðurinn, Íslendingur á fertugsaldri, sem verið hafði skipverji á Goðafossi, skipi Eimskipafélagsins, var handtekinn við komu skipsins hingað til lands 13. júní síðastliðinn. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 5. júlí, að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. - jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×