Innlent

Nauðgunartilraun enn til rannsóknar

Mynd/Pjetur
Tilraun til nauðgunar á Egilsstöðum um miðjan síðasta mánuð er enn til rannsóknar hjá lögreglu. Eftir því sem fréttastofa kemst næst hefur einn karlmaður verið handtekinn í tengslum við málið en honum var að lokum sleppt. Hann neitar sök.

Óskar Bjartmarz yfirlögregluþjónn vildi lítið tjá sig um málið þegar eftir því var leitað þar sem rannsóknin stendur enn yfir. Í frétt RÚV um árásina í síðasta mánuði kom fram að maðurinn hefði brotist inn á heimili konunnar og að hún hefði náð að flýja undan árásarmanninum og leitað sér aðstoðar hjá nágrönnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×