Innlent

Aðstoðuðu vélarvana bát

Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Björgunarsveitin Þorbjörn í Grindavík var kölluð út á níunda tímanum í morgun þegar bátur varð vélarvana í innsiglingunni í höfnina í Grindavík.

Bátur sveitarinnar, Árni í Tungu, fór á staðinn og var kominn að hinum vélarvana báti rúmum fimm mínútum eftir að beiðni um aðstoð barst. Einnig var björgunarskipið Oddur V. Gíslason sent á svæðið.

Árni í Tungu dró bátinn, sem var fyrir miðri innsiglingunni, til hafnar. Veður var ágætt á svæðinu en nokkuð þungur sjór.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×