Innlent

Stal skarti og snyrtivörum

Mynd/Pjetur
Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur ákært konu á fertugsaldri fyrir þjófnað og fíkniefnalagabrot.

 

Konunni er gefið að sök að hafa stolið snyrtivörum og skarti úr Hagkaupi í Smáralind. Verðmæti þýfisins nam rúmlega tuttugu þúsund krónum.

 

Þá er konan ákærð fyrir að hafa haft í fórum sínum fíkniefnið maríjúana sem lögregla fann við leit í bifreið hennar, þar sem hún var stöðvuð við Jaðarsel í Reykjavík.- jss




Fleiri fréttir

Sjá meira


×