Erlent

Lík Amy Winehouse krufið í dag

Krufning á líki söngkonunnar Amy Winehouse fer fram í dag en lögreglan hefur fram að þessu skráð andlát hennar sem óútskýrt.

Er vonast til að krufningin leiði í ljós hvað varð banamein söngkonunnar en hún lést um helgina aðeins 27 ára að aldri.

Samkvæmt frásögnum í breskum slúðurblöðum í morgun sást til Winehouse að kaupa mikið  af fikniefnum daginn sem hún lést. Þar á meðal var alsæla, kókaín og ketamine en það síðastnefnda er yfirleitt notað sem deyfilyf fyrir hesta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×