Lífið

Í fótspor Madonnu

Nýtt andlit Leikkonan unga Felicity Jones er nýtt andlit Dolce & Gabbana.
Nordicphotos/getty
Nýtt andlit Leikkonan unga Felicity Jones er nýtt andlit Dolce & Gabbana. Nordicphotos/getty
Leikkonan unga Felicity Jones er nýtt andlit tískuhússins Dolce & Gabbana og fetar þar með í fótspor frægra kvenna á borð við Madonnu og ScarlettJohansson. Jones er frekar lítið þekkt nafn í kvikmyndaheiminum en hlaut mikið lof fyrir leik sinn í myndinni Like Crazy. Bæði myndin og Jones hlutu verðlaun á Sundance-kvikmyndahátíðinni.

Í tilkynningu frá tískuhúsinu segir að Jones standi fyrir klassíska fegurð og náttúrulega útgeislun. Jones mátti einnig sjá í nýlegri auglýsingaherferð Burberry-tískuhússins fyrir haust og vetur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.