Innlent

Lækka bensínið um fimm krónur

Mynd/Haraldur jónsson
Olíufélögin Atlantsolía og Orkan lækkuðu bensín- og dísilverð í morgun um fimm krónur, eftir að hafa lækkað bensínið um þrjár krónur í gær. Hin félögin fylgdu í kjölfar lækkkunarinnar í gær og búist er við að þau fylgi líka lækkuninni í dag.

Nú er bensínlítrinn hjá Atlantsolíu og Orkunni kominn niður í 227 krónur og 60 aura, sem er lækkun um átta krónur. Dísillítrinn hefur lækkað um níu krónur og er nú jafn dýr bensíni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×