Innlent

Samningafundur flugmanna heldur áfram fyrir hádegi

Samningafundur flugmanna hjá Icelandair og viðsemjenda þeirra, sem hófst í gærmorgun, stóð  hjá Ríkissáttasemjara fram yfir miðnætti, að hlé var gert til klukkan hálf ellefu fyrir hádegi í dag.

Yfirvinnubann flugmanna hefst klukkan tvö í dag ef ekki semst fyrir þann tíma. Það mun þýða röskun á flugi Icelandair, því ekki verður þá hægt að kalla út flugmann, ef einhver flugmaður forfallast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×