ÍAV þarf að segja upp 170 manns Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. janúar 2011 18:34
ÍAV, sem er verktakahluti Íslenskra aðalverktaka, þarf að segja upp 170 starfsmönnum í sparnaðarskyni, en það er tæplega helmingur allra starfsmanna fyrirtækisins. ÍAV mun skila af sér tónlistarhúsinu Hörpu í maí næstkomandi en tekjur vegna byggingar hússins mynda stærstan hluta veltu fyrirtækisins í dag. ÍAV mun fyrir næstu mánaðarmót tilkynna um uppsögn tæplega 170 starfsmanna, sem er tæplega helmingur allra starfsmanna fyrirtækisins en þar vinna tæplega 380 manns. Að sögn Karls Þráinssonar, forstjóra ÍAV er uppsögn starfsmannanna liður í því að undirbúa fyrirtækið undir verklok tónlistarhússins. Þá hafi önnur verkefni á vegum ríkis og sveitarfélaga ekki farið af stað en Karl sagði að fyrirtækið hefði bundið vonir við að stórar virkjanaframkvæmdir kæmust á skrið en það hafi ekki orðið að veruleika. Mjög fá verkefni byðust á Íslandi í dag og því hafi fyrirtækið ekki séð neinn annan kost í stöðunni en að grípa til uppsagna. Að sögn Karls var mörgum starfsmönnum á skrifstofu fyrirtækisins sagt upp eftir bankahrunið. Flestir þeirra sem misstu starfið núna væru því iðnaðarmenn og menn sem störfuðu við framkvæmdir en þó væri eitthvað um uppsagnir hjá skrifstofufólki og stjórnendum einnig. Karl sagði að í dag hefði aðlögunarferli að uppsögnum hafist, en hugsanlega væri hægt að draga eitthvað úr uppsögnum ef fyrirtækið fengi ný verkefni á næstunni. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, sagði við Stöð 2 í dag að miðað við fjölda fyrirhugaðra uppsagna, þ.e 170, væri þetta stærsta einstaka hópuppsögn hjá íslensku fyrirtæki frá bankahruni.
Mest lesið „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Innlent Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum Innlent Segir verkfræðinga á villigötum Innlent Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Innlent Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Innlent „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Innlent Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Innlent Hlé vegna gagna frá ChatGPT Innlent Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Innlent Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti Innlent Fleiri fréttir Tæknileg vandræði hjá Háskóla Íslands Hlé vegna gagna frá ChatGPT Sérsveitin kölluð til í Urriðaholti „Mér að mæta“ ef krossar yrðu fjarlægðir Segir verkfræðinga á villigötum Landsvirkjun gerir 725 milljón króna tilboð í Toppstöðina Skjálfti í Bárðarbunguöskjunni Óttast að tapa bestu flúðum landsins í virkjun Rauðu örvarnar leika listir sínar á Íslandi Apabóla geti komið til landsins en muni ekki verða útbreidd Katrín gerir upp framboðið og safnar heitum „Viðbrögð lögreglu óásættanleg“ eftir líkamsárás á Þjóðhátíð Munaðarlaus álftarungi ætti að spjara sig Gæti misst fótinn eftir að starfsmannarútan ók yfir hana Áttar sig ekki á ákalli formanns VG Ósammála ráðherrar, brotthvarf tónleikastaða og einmana ungi Neitaði að borga þegar á áfangastað var komið Fordæmalausar skemmdir unnar á Sprengisandi Helga Vala til Lögfræðistofu Reykjavíkur Ósátt við skógrækt í mólendi fyrir utan Húsavík Sektaður fyrir að nota rafólar á hunda Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Sjá meira