Innlent

Vilja fund í heilbrigðisnefnd

Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í heilbrigðisnefnd Alþingis fara fram á að nefndin komi sem fyrst saman til fundar. Þau Guðlaugur Þór Þórðarson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir vilja ræða málefni Landspítalans, „sérstaklega í ljósi ummæla ráðherra um að færa þjónustu spítalans aftur til ársins 2004," eins og segir í tilkynningu frá þeim.

Þá vilja þau ræða málaflokka á vegum Sjúkratrygginga Íslands en þingmennirnir segja að fram hafi komið að ríkisstjórnin hafi enn ekki tekið ákvörðun um hvernig ná eigi milljarða sparnaði eins og boðað hafi verið í fjárlögum. Að síðustu nefna þau undirbúning á flutningi verkefna frá velferðarráðuneyti til Sjúkratrygginga Íslands sem á að koma til framkvæmda um áramót.

Þingmennirnir fara fram á að velferðarráðherra, forstjóri LSH og forstjóri Sjúkratrygginga Íslands mæti fyrir nefndina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×