Lífið

Dansaði inn kirkjugólfið við tóna Beyoncé

Hér sést Íris dansa inn kirkjugólfið með föður sínum við mikinn fögnuð brúðkaupsgesta.
Hér sést Íris dansa inn kirkjugólfið með föður sínum við mikinn fögnuð brúðkaupsgesta.
„Ég var búin að kvíða fyrir því að þurfa að ganga inn kirkjugólfið ein með pabba og þetta létti óneitanlega andrúmsloftið og minnkaði stressið," segir Íris Arnlaugsdóttir stjórnmálafræðingur, sem dansaði inn kirkjugólfið um síðustu helgi við lagið Single Ladies með Beyoncé.

Íris og eiginmaður hennar, Óskar Þór Lárusson stoðtækjasmiður, voru sammála um að þau vildu ekki hafa brúðkaupið hefðbundið. Að dansa inn í kirkjuna með grímu fyrir andlitinu ásamt foreldrum sínum, vinkonum og börnum var því liður í að hafa athöfnina óformlega.

„Ég fann skemmtilegt myndband á YouTube af pari að dansa inn kirkjugólfið og langaði til að gera eitthvað svipað," segir Íris og bætir við að vinkonur hennar hafi átt stóran þátt í skipulagningunni. „Aðalatriðið var að fá fólk til að brosa og hafa gaman sem tókst vel."

Það er óhætt að fullyrða að lagið Single Ladies, sem flestir eru vanari að heyra á skemmtistöðum borgarinnar, sé óhefðbundið brúðkaupslag. Það á sér hins vegar sögu hjá parinu og þá sérstaklega setning í viðlaginu: „If you liked it then you shoulda put a ring on it."

„Eins og gengur og gerist var ég búin að setja smá pressu á Óskar varðandi trúlofun og giftingu. Í hvert sinn sem þetta lag hljómaði í partýum vorum við vinkonurnar vanar að stríða honum aðeins með þessu."

Íris fékk svo annað af tveimur bónorðum í brúðkaupi vinahjóna sinna fyrir ári.

„Óskar skellti sér á skeljarnar á dansgólfinu, einmitt þegar Single Ladies var spilað, og bað mín með servíettuhring. Það var mjög fyndið en ég fékk svo alvöru hring og bónorð stuttu síðar."- áp






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.