Innlent

Féll af vélhjóli

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Óhappið varð á Laugarvatnsafleggjaranum. Mynd/ Google
Óhappið varð á Laugarvatnsafleggjaranum. Mynd/ Google
Vélhjólamaður féll af hjóli sínu á Laugarvatnsafleggjaranum við bæinn Miðdal um þrjúleytið í dag. Hann var fluttur á slysadeild Landspítalans eftir slysið þar sem hann er til skoðunar, en maðurinn mun hafa kennt eymsla í baki. Verið er að vinna að lagfæringum á veginum þar sem óhappið varð og því er lausamöl þar sem erfitt er að aka í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×