Innlent

Varðskipið Týr kemur til landsins í dag

Varðskipið Týr er væntanlegt til landsins fyrir hádegi, en það hefur verið í leiguverkefni fyrir Evrópsku landamærastofnunina í allt sumar.

Þar með verður varðskip aftur tiltækt við landið, því varðskipið Ægir hefur líka verið í leiguverkefni erlendis og er enn. Týr mun væntanlega fara í slipp áður en hann fer til gæslustarfa. 

Nýja varðskipið, sem er í smíðum í Chile, er svo væntanlegt til landsins seint í haust.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×