Innlent

Öryggismálin sögð veigamest

Flugmenn skrifuðu undir kjarasamning við Flugfélag Íslands í gær.
Flugmenn skrifuðu undir kjarasamning við Flugfélag Íslands í gær. Mynd/Vilhelm
Flugmenn hjá Flugfélagi Íslands skrifuðu undir kjarasamning við Flugfélag Íslands um tvöleytið í gær. Hafsteinn Pálsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, segir að veigamesti þátturinn í nýju samningunum lúti að starfsöryggismálum. Hann vill að öðru leyti ekki tjá sig um samningana. Atkvæði verða greidd um nýju samningana á næstu dögum.

Flugmenn hjá Icelandair hafa gert kjarasamning við sinn atvinnuveitanda og hefur hann jafnframt verið samþykktur í atkvæðagreiðslu.

- jhh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×