Tvær nauðganir til viðbótar kærðar 5. ágúst 2011 08:30 Lögreglan á Selfossi rannsakar nú fjórar nauðgunartilkynningar. Þar af hafa tvær verið kærðar formlega. Mynd/óskar P. Friðriksson
Tvær nauðganir sem áttu sér stað um verslunarmannahelgina voru kærðar í gær. Kona á þrítugsaldri kærði mann til lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fyrir nauðgun og hefur hann verið yfirheyrður. Nauðgunin er sögð hafa átt sér stað í heimahúsi, en maðurinn og konan þekkjast. Maðurinn ber fyrir sig minnisleysi, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Þá barst lögreglu önnur kæra vegna nauðgunar á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi, sem gat ekki veitt viðtal vegna anna, eru nú fjögur nauðgunarmál til rannsóknar þar eftir Þjóðhátíð, en þar af hafa tvær verið kærðar. Einn maður situr í gæsluvarðhaldi og rennur úrskurðurinn út í dag. Maðurinn kærði gæsluvarðhaldsúrskurðinn til Hæstaréttar, þar sem hann var staðfestur. Lögreglan á Selfossi lýsir nú eftir vitnum að síðari nauðguninni sem var kærð í gær, en hún mun hafa átt sér stað aðfaranótt mánudagsins 1. ágúst á tímabilinu frá klukkan 1.30 til 2 við hljóðskúr í Herjólfsdal. Lýst er eftir vitnum að átökum manns eða tveggja manna við konu á þrítugsaldri á þessum stað á þessum tiltekna tíma. Neyðarmóttökum sjúkrahúsa víðs vegar um landið hafa borist tilkynningar um að minnsta kosti tíu nauðganir eftir helgina, samkvæmt fréttum RÚV í gærkvöld. Þar af voru sex á Þjóðhátíð í Eyjum. Páll Scheving Ingvarsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, vill láta setja upp eftirlitsmyndakerfi í Herjólfsdal fyrir næstu hátíð. Þá hafa Stígamót og Nei-hópurinn sagt að ekki sé útilokað að samtökin hafi sjálfboðaliða í Eyjum á næsta ári, verði þess óskað. - sv
Mest lesið Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Innlent Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Innlent Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Innlent Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Innlent Illvænlegar vendingar á veðurspánni fyrir helgina Veður Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Innlent Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Erlent Foreldrar og kennarar minnast ungu stúlknanna Erlent Fleiri fréttir „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Telur Sigríði ekki geta áminnt hann og vonar að ráðherra hunsi ósk hennar Óeirð á hjúkrunarheimilum vegna endalausra íþrótta á RÚV Svona verða hátíðarhöldin á fimmtudaginn Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Kobbi Láki kom stýrisvana skútu til bjargar Háttsemi Helga nái aftur til 2017 Sagði móður ekki heila á geði og fær skömm í hattinn Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Ekki sammála því að atvinnulífið hafi brugðist Helgi segir lítinn sóma að framgöngu ríkissaksóknara Gæti gosið á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Sjá meira