Erlent

Listmunasali smyglaði tonni af fílabeini

Listmunasali í Philadelphiu hefur verið handtekinn og ákærður fyrir að smygla tonni af útskornum fílabeinum til Bandaríkjanna. Viðskipti með fílabein eru stranglega bönnuð í Bandaríkjunum og samkvæmt alþjóðalögum.

Listmunasalinn mun hafa fengið samstarfsmenn í Afríku til að kaupa fílabeinin þar og skera þau út eftir hans óskum. Síðan voru þau lituð til að þau litu út eins og forngripir.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þessi listmunasali kemst í hendur lögreglunnar því árið 2009 voru hundruðir gripa úr útskornu fílabeini gerðir upptækir í verslun hans í Philadelphiu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×