Lífið

Táningsnornin kærð

vesen Melissa Joan Hart var kærð tvisvar í þessum mánuði.
vesen Melissa Joan Hart var kærð tvisvar í þessum mánuði.
Leikkonan Melissa Joan Hart, sem gerði garðinn frægan sem táningsnornin Sabrina, hefur verið kærð tvisvar í þessum mánuði.

Fyrsta kæran kom frá fyrrverandi starfsmanni sælgætisverslunar Joan Hart. Kæran snerist um ólöglegan brottrekstur og kynþáttaníð. Fyrrverandi umboðsmaður hennar fylgdi fyrri kærunni eftir með því að kæra hana fyrir samningsbrot.

Í báðum kærunum er farið fram á háar skaðabætur, svo nornin fyrrverandi virðist ekki í góðum málum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×