Innlent

Iðnaðarráðherra gat engu svarað

Katrín Júlíusdóttir.
Katrín Júlíusdóttir. Mynd/Anton Brink
Iðnaðarráðherra gat engu svarað um það á Alþingi í dag hvað liði áformum um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum. Stjórnarandstöðuþingmaður var rekinn úr ræðustól þegar hann reyndi að fá skýrari svör en ráðherrann sagði að engar fréttir væru góðar fréttir.

 

 

Iðnaðarráðherra gat engu svarað um það á Alþingi í dag hvað liði áformum um uppbyggingu orkufreks iðnaðar í Þingeyjarsýslum. Stjórnarandstöðuþingmaður var rekinn úr ræðustól þegar hann reyndi að fá skýrari svör en ráðherrann sagði að engar fréttir væru góðar fréttir.

 

Tuttugu mánuðir eru liðnir frá því núverandi ríkisstjórn hafnaði að framlengja viljayfirlýsingu við Alcoa um álver á Bakka, einkum í því skyni að kanna aðra kosti. Iðnaðarráðherra hefur síðan ítrekað sagt Þingeyingum að fara að búa sig undir stórfellda atvinnuuppbyggingu.

 

Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, minnti ráðherrann á þessi orð á Alþingi í dag og sagði ekkert hafa heyrst um þessa stórfelldu atvinnuuppbyggingu.

 

Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði að á næstu dögum yrði undirrituð ný viljayfirlýsing við sveitarfélögin fyrir norðan um frekari greiningu á innviðum samfélagsins og Landsvirkjun ætlaði að setja aukinn kraft í jarðhitarannsóknir í sumar og en hafði engar fréttir af iðnaðaruppbyggingu. Hún sagði að þingmaðurinn ætti ekki að taka því sem vondum fréttum að heyra engar fréttir því yfirleitt væri reglan sú að engar fréttir væru góðar fréttir.

 

Höskuldur sagði að engar fréttir af þessari ríkisstjórn væru vissulega yfirleitt góðar fréttir en sagði að þetta verkefnið þarfnaðist ekki enn einnar viljayfirlýsingarinnar. Það þyrfti að að fara að gera eitthvað.

 

Ráðherra sakaði þingmanninn um að tala málið niður þegar raunveruleikinn væri sá að mjög stórar framkvæmdir væru framundan á svæðinu og Landsvirkjun áformaði 50 milljarða fjárfestingar í fyrsta áfanga fyrir árið 2014. En nefndi þó ekki hvaða iðnaðaruppbygging ætti að kaupa orkuna.

 

Höskuldur vildi skýrari svör, kvaðst hafa fengið yfir sig fúkyrðaflaum, og reyndi að óska eftir því í umræðum um störf þingsins að forseti Alþingis beitti sér fyrir því að ráðherra svaraði. Þingforsetinn, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, svaraði þingmanninum engu en sló þess í stað sem ákafast í bjöllu þingsins og rak þingmanninn að lokum úr ræðustól og frestaði fundi.

 

 

 

"Það er ótrúleg skömm að fundarstjórn forseta hér," sagði Höskuldur um leið og hann yfirgaf ræðustólinn.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×