Innlent

Njóta veðurblíðunnar í miðbænum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjöldi fólks var samankominn á Austurvelli í dag til að njóta góðs veðurs. Mynd/ Sigurjón.
Fjöldi fólks var samankominn á Austurvelli í dag til að njóta góðs veðurs. Mynd/ Sigurjón.
Fjöldi fólks er samankominn í miðborginni, enda skín sólin skært í dag. Í Reykjavík er um það bil tíu stiga hiti og heiðskírt. Augljóst er að ferðamenn eru farnir að týnast hingað til lands því heyra má fólk mæla á erlenda tungu á kaffihúsunum í miðborginni, segir Sigurjón Ólason myndatökumaður sem tók meðfylgjandi mynd. Adam verður ekki lengi í Paradís því að á morgun er búist við mun þungbúnara veðri um land allt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×