Hjólreiðahátíðin Tour de Hvolsvöllur endurvakin 27. júní 2011 11:56 Hjólreiðar efla heilsuna Mynd úr safni
Hjólreiðahátíðin Tour de Hvolsvöllur hefur verið endurvakin frá gömlum glæðum og verður haldin laugardaginn 9. júlí á Hvolsvelli. „Mikil heilsuefling hefur verið á meðal landans að undanförnu og ekki síst hér á þessu svæði. Það er gaman að geta tekið þátt í því og tilvalið að efna til þessarar hátíðar hér, þar sem á árum áður voru haldin Íslandsmeistaramót í hjólreiðum" segir Ísólfur Gylfi Pálmason, sveitarstjóri Rangárþings eystra. Efnt verður til keppni á götuhjólum og verður hægt að velja um þrjár vegalengdir, frá Olís Norðlingaholti í Reykjavík að Hvolsvelli um Þrengslaveg um 110 km, frá Byko Selfossi að Hvolsvelli um 48 kílómetra, og 14 kílómetra frá Reykjagarði Hellu að Hvolsvelli. Keppnin er unnin í samráði við lögregluumdæmin og verður keppendum fylgt eftir af lögreglu og björgunarsveitarmönnum til að tryggja öryggi þeirra. Að lokinni keppni á lengri leiðum hefst fjölskylduskemmtun í miðbæ Hvolsvallar, þar sem öll fjölskyldan getur tekið þátt í leikjum og keppnum. Hjólafærni verður á staðnum og fjölskyldan getur hjólað saman í fjölskylduhjólreiðahringnum síðar um daginn. Skráning í keppnina hefst á hádegi í dag, mánudag 27. júní og stendur fram á keppnisdag. Skráningin fer fram á netinu eða í gegnum upplýsingamiðstöðina Hvolsvelli. Allar nánari upplýsingar um keppnina og skráningu er að finna á vef Rangárþings eystra, og viðburðarsíðu á Facebook undir Tour de Hvolsvöllur. Fjölmargir aðilar og fyrirtæki koma að keppninni og hátíðinni að þessu sinni og er hún unnin í samvinnu við hjólreiðanefnd íþrótta- og ólympíusambands Íslands, Hjólreiðafélag Reykjavíkur, Hjólafærni, Byko og Intersport, sveitarfélagið Rangárþing eystra og fleiri.
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Innlent „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Fleiri fréttir Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Sjá meira