Besta opnun sem menn muna 27. júní 2011 06:00 Einar Páll Kjærne-sted og Ólafur M. Gunnlaugsson með 76 sentimetra hrygnu úr Fosshyl. mynd/svanþór einarsson
Opnun Selár í Vopnafirði á laugardag mun fara í sögubækurnar sökum metveiði. Alls veiddust tuttugu laxar á aðeins fjórar stangir sem bætir met síðustu tveggja ára sem menn töldu að væri erfitt. Leigutaki Selár, Orri Vigfússon, formaður Strengs, segir að þeir sem voru svo lánsamir að eiga opnunardaginn muni seint gleyma þessum ævintýralega degi. Ekki aðeins var tuttugu löxum landað heldur settu menn í annað eins af laxi og misstu. „Það er mikið vatn í Selá og erfitt að eiga við stóran lax. Því má segja eðlilegt að margir sluppu.“ Laxarnir voru að mestu leyti tveggja ára fiskar frá tíu til fjórtán pund. Það vakti þó athyli að tveir eins árs laxar veiddust sem voru afar vel haldnir úr sjó, eða um sex pundin. Orri segir mikið af laxi vera gengið enda þó að áin sé aðeins fimm gráðu heit. Metveiði var við opnun Selár í fyrra, sem er til marks um mikinn árangur í uppbyggingarstarfi í ánni. Þá var veðrið og skilyrði til veiðiskapar betri en nú, en Orri vill ekkert segja um það hvort góð opnun hafi forspárgildi um metveiði í sumar. - shá
Mest lesið Fékk besta nafnið frá frú Vigdísi Innlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Innlent Í eðli okkar að fylgjast með náunganum Innlent Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Innlent Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Innlent Vandræðasaga Helga: Skortur á hommum, meint „kerlingartussa“ og Facebook-þumallinn Innlent Halla Tómasdóttir orðin sjöundi forseti lýðveldisins Innlent „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Innlent Vildu að Navalní yrði hluti af fangaskiptunum sögulegu Erlent Fleiri fréttir Íslendingar öllu veðri vanir Ganga frá Hallgrímskirkju og spila hljóð frá sprengjuregni Kjósendur VG leiti nú til Sósíalista Bílarnir ónýtir og tveir fluttir á sjúkrahús Sló bíl með golfkylfu eftir átök milli fíkniefnasala og kaupanda Íslendingur vann tæpar 37 milljónir í Eurojackpot „Það er í raun og veru allur bransinn sem er í hættu“ Nauðgunarbrandari Patriks féll í grýttan jarðveg Sósíalistar sem ætla á þing og þjóðhátíð í beinni „Ótrúlegt“ að Halla hafi ekki verið fyrsta frétt RÚV Vara við væntanlegum fjölda netsvika um helgina Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Sex sérsveitarmenn í Eyjum og lagt hald á tvo hnífa Meiri umferð um Vesturlandsveg en Suðurlandsveg Hundrað ár í dag frá fyrsta flugi til Íslands Grunuð um að flytja fíkniefni til landsins með tólf ára son í för Það séu vonbrigði ef fyrirtæki hækki verð úr hófi Kveikur frá Stangarlæk fallinn Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Strandavegur í sundur og ferðamaður festi sig í flýti Auknar líkur á að eldgos hefjist á næstu dögum Allir ættu að komast leiðar sinnar þrátt fyrir viðvörun Telur stöðu heimsmála hafa áhrif á fylgið Aukin skjálftavirkni, óviðunandi fylgi og óveður í Eyjum Sakborningur í pottamálinu grunaður um tilraun til manndráps Sjálfstæðismenn taki „óviðunandi“ fylgi alvarlega Sérsveitin skarst í leikinn þegar unglingar slógust í Mjódd Auknar líkur á skriðuföllum um helgina Úrkoman í júlí sló met Fólk eigi að gera ráð fyrir innbrotum Sjá meira