Innlent

Tveir karlmenn brutust inn og síðan út úr verslun

Tveir karlmenn, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt eru sekir um bæði innbrot og útbrot, auk þjófnaðar.

Þeir spenntu upp útidyr að verslun í austurborginni og fóru þar inn. Þar tóku þeir  tvo stóra flatskjái til handargangs, en þegar þeir ætluðu aftur út, hafði rammger útihurðinn skellst í lás og varð ekki haggað.

Þeir brutu sér því leið út um rúðu í stórum glugga og komust þar út. Vitni hafði á meðan látið lögreglu vita, sem greip þá glóðvolga, þegar þeir voru að aka af vettvangi með þýfið, og þar með var úti um ævintýrið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×