Innlent

Lýst eftir alzheimersjúkum manni

Lögregla á höfuðborgarsvæðinu ásamt Landsbjörgu leitar að 84 ára gömlum manni sem er alzheimersjúklingur og hefur ekkert sést til hans síðan 18.30, í Vesturbæ Reykjavíkur.

Maðurinn heitir Ólafur, er 185-190 cm. á hæð, er feitlaginn og sköllóttur. Hann er í dökkbrúnum mittissíðum jakka, í dökkbrúnum buxum, með svartan sixpensara og í Ecco sandölum. Hann er ekki vel viðræðuhæfur, en getur svarað já og nei.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×