Ólafur Ragnar fær einkafund með páfanum Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 22. febrúar 2011 19:30
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fer til Rómar í næstu viku til fundar við Benedikt páfa sextánda til að færa honum að gjöf styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur. Forsetinn fær þá einkaáheyrn páfa. Eftir að hafa vísað Icesave samningunum í þjóðaratkvæðagreiðslu mun forseti Íslands halda í suðurgöngu í Páfagarð en hann mun eiga fund með Benedikt sextánda í næstu viku. Aðalefni fundarins er að forseti Íslands hyggst afhenda páfanum styttu af Guðríði Þorbjarnardóttur. Guðríður var uppi í kringum árið 1000 og var á sínum tíma talin víðförlasta kona heims. Hún fæddist á Íslandi en sigldi til Grænlands og þaðan til Vínlands. Þá gekk hún víða um Evrópu. Guðríður settist loks að í Glaumbæ í Skagafirði. Þegar hún var orðin ekkja fór hún til Rómar og gaf páfanum skýrslu um ferðir sínar. Leifur heppni er sagður hafa bjargað hópi manna, þar á meðal Guðríði og og Þóri austmanni, fyrsta manni hennar, úr skeri og flutt með sér til Brattahlíðar, þar sem Þórir veiktist og dó skömmu síðar. Guðríður giftist þá Þorsteini Eiríkssyni sem var bróðir Leifs heppna. Hann veiktist einnig og dó en Guðríður giftist loks Þorfinni karlsefni Þórðarsyni frá Glaumbæ í Skagafirði. Styttan sem forsetinn mun afhenda páfanum er eftir Ásmund Sveinsson og er nú þegar til í þremur eintökum. Eitt þeirra er í Glaumbæ, annað við Laugarbrekku á Snæfellsnesi en sú þriðja í Ottawa í Kanada. Páfinn mun veita Ólafi Ragnari einkaáheyrn en slík er afar sjaldgæft. Páfinn tekur eingöngu á móti biskupum, kardinálum, þjóðhöfðingjum og fólki með mjög brýn eða sérstök erindi.
Mest lesið Stærra eldgos væntanlegt Innlent Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Innlent Tom Cruise seig og sveif og tók við fánanum fyrir hönd Los Angeles Erlent Vonir bundnar við „heilagan kaleik“ við sykursýki Erlent Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Innlent Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Innlent USS Abraham Lincoln skipað að flýta för sinni til Mið-Austurlanda Erlent Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Innlent Framsókn og VG útiloki ekkert Innlent Drukkinn Íslendingur kýldi leigubílstjóra í Taílandi Innlent Fleiri fréttir Veikindi í bíl ollu umferðartöfum í gær Þögull sem gröfin Framsókn og VG útiloki ekkert Stærra eldgos væntanlegt Kókaín í héraðsdómi og þreyta á stjórnarheimilinu Enn óljóst hvaðan falsboðið um ferðamennina kom Drukkinn Íslendingur sagður hafa kýlt leigubílstjóra í Taílandi Bar við minnisleysi og sagði ekki um sama Pétur að ræða Hafnar alfarið aðild þrátt fyrir ýmsar vísbendingar um annað Fyrrum húsnæðiseigendur í Grindavík fá að leigja hús Matsferillinn sé svar við gagnrýni á samræmd próf Reyna að sýna fram á tengsl Péturs Jökuls við 99 kíló af kókaíni Leitar ráðgjafar innan og utan ráðuneytis um mál vararíkissaksóknara Biðlisti Rafbókasafnsins geti verið allt að ár Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Löturhæg umferð inn í borgina Námsgögn verði einnig gjaldfrjáls í framhaldsskólum Þyrluflugmenn uggandi: „Klárt að þetta hefur neikvæð áhrif“ Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Treystir Útlendingastofnun fullkomlega Eldur í flugskýli í Múlakoti í nótt Fjölskyldur sendar úr landi og viðvörunarkerfi í Grindavík Enn gasmengun í lægðum en rafleiðni nálgast eðlileg gildi Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu „Fullorðna fólk, grow up!“ Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Helgi Magnús ritar ráðherra bréf og Ásmundur Einar um menntakerfið Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Mótmæla brottvísun stórs hóps hælisleitenda Sjá meira