Innlent

Íslendingur í Christchurch: Allt úr skorðum

MYND/David Alexander/ThePress
Líney Weishappel býr í Christchurch, þar sem öflugur jarðskjálfti reið yfir í nótt, ásamt manni sínum og tveimur börnum. Hún var við vinnu í miðborginni þegar skjálftinn reið yfir. „Hann hefur varað í svona 20 sekúndur og þetta var mjög mikill hristingur." Líney segist hafa búið á Íslandi sumarið 2000 þegar tveir öflugir skjálftar skullu á með skömmu millibili og segir hún að skjálftinn í gær hafi verið mun öflugri. Heima hjá Líney fór allt úr skorðum, vatnspípur hrukku í sundur og rafmagnið er farið af.

Skjálftinn mældist 6,3 stig á Richter og upptök hans voru í um 10 km fjarlægð frá borginni. Búið er að lýsa yfir neyðarástandi á svæðinu en þúsundir manna leita nú í rústunum að ættingjum og vinum. Talið er að tala látinna eigi eftir að hækka verulega þegar líður á daginn. Fjöldi húsa er hruninn og meðal annars fórst fjöldi fólks þegar hús hrundi á tvo strætisvagna. Þá hrundi dómskirkja borgarinnar. Síðasta haust urðu miklar skemmdir í Christchruch er jarðskjálfti upp á 7 stig á Richter reið yfir hana en ekkert manntjón varð af völdum þess skjálfta.

Að minnsta kosti tveir af vinnustað Líneyjar festust undir þaki sem hrundi. Og margir til viðbótar slösuðsut. Sjálf var hún send heim. Á leiðinni sem venjulega tekur 10 mínútur en tók í þetta skiptið einn og hálfam tíma sá líney vel eyðilegginguna í borginni og skelfinguna á meðal íbúa. „Það er mjög óraunverulegt að það er allt úr skorðum, ekkert rafmagn, götur sprungnar og allir að flýta sér."

Íbúum í Christchurch hefur verið sagt að halda sig heima við næstu þrjá sólarhringana. Margir geta það ekki vegna skemmda á húsum og því nokkur þúsund manns leitað skjóls í neyðarskýlum.

Líney hefur náð sambandi við flesta þá Íslendinga sem í Christchurch búa og hefur fengið þær fréttir að þeir séu óhultir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×