Innlent

Hækkandi bensínverð truflar kórastarf á landsbyggðinni

Runólfur Ólafsson segir nýjustu hækkanir rosalegar.
Runólfur Ólafsson segir nýjustu hækkanir rosalegar. Mynd: GVA
„Þetta er rosaleg hækkun. Þetta kemur mjög illa við fólk og leiðir til aukins samdráttar sem tilheyrandi margfeldisáhrifum," segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda. Bensín hækkaði í gærkvöldi á flestum stöðvum um allt að fjórar krónur. Hækkunina má rekja til hækkandi heimsmarkaðsverðs vegna átaka í Mið-austurlöndum, sérstaklega í Líbíu.

Áhrifin teygja sig víða en Runólfur hefur heyrt dæmi um að kórastarf á landsbyggðinni sé farið að líða fyrir hækkandi bensínverð þar sem kórfélagar hafa ekki efni á því að keyra á æfingar.

Þannig er hátt verð á bensíni og olíu sé þegar farið að hafa áhrif á samgöngur. „Þetta er þegar farið að hafa þau áhrif að það dregur úr umferð. Við höfum séð tölur frá Vegagerðinni sem sýna það," segir hann.

Runólfur nefnir einnig sem dæmi að um 6% samdráttur varð á ferðum um Hvalfjarðargöngin í janúar, samanborið við sama mánuð í fyrra. Þannig fóru 7 þúsund færri bílar um göngin nú en þá.



Til að kór geti æft þurfa kórfélagar að koma saman. Það kostar pening, og aukinn pening með hækkandi bensínverðiMynd úr safni
Eldri hjón sitja heima

Fjöldi fólks hefur samband við FÍB og lýsir áhyggjum sínum vegna hækkandi eldsneytisverðs. Þannig þekkir Runólfur dæmi af eldri hjónum í litlu þorpi á Vestfjörðum sem hafa lengi sótt félagslega afþreyingu til næsta bæjarfélags. „Þau hafa notað eigin bíl til að fara á milli en nú eru þau hætt að sækja þessa afþreyingu og sitja bara heima. Þau hafa ekki efni á þessu lengur," segir hann.

Fara sjaldnar í sumarbústað

Bensín hækkaði á heimsmarkaði í gær um 61 dollara tonnið. Tonnið kostar því nú um 900 dollara í stað 840. „Það er ansi mikið," segir Runólfur.

Hann bendir á að vissulega stjórna íslensk yfirvöld ekki heimsmarkaðsverði á bensíni en þau taki hins vegar ákvarðanir um skatta á eldsneyti og aðrar álögur.

„Ef við tökum dæmi af fjölskyldu á höfuðborgarsvæðinu sem á sumarbústað á landsbyggðinni en fer sjaldnar í bústaðinn vegna hærra bensínverðs. Þessi fjölskylda er þar með ekki að örva verslun og viðskipti á svæðinu," segir Runólfur sem telur verðhækkanirnar bitna mest á landsbyggðinni.

N1 og Olís hækkuð verð á 95 oktana bensíni mest í gær, eða um 4 krónur. Dýrast er bensínið hjá Skeljungi þar sem lítrinn kostar 223,40 krónur. Ódýrast er að versla við Orkuna þar sem viðskiptavinir greiða 218,0 krónur fyrir lítrann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×