Innlent

Ökumaður endaði inn í garði á Akureyri

Karlmaður, sem kominn er vel á níræðisaldur, missti stjórn á bíl sínum á gatnamótum Eyrarvegar og Norðurgötu á Akureyri undir kvöld í gær.

Bíllinn þeyttist inn á lóð íbúðarhúss, spændi hana upp og hafnaði loks afturábak á stóru lerkitré. Svo vel vildi til að engin var á ferð á vettvangi þegar þetta gerðist.

Ökumaðurinn og eiginkona hans sluppu ómeidd, en talið er að ökumaður hafi í ógáti stigið bensínið í botn, í stað þess að bremsa á gatnamótunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×