Ólöf segir orð sín slitin úr samhengi 25. apríl 2011 13:06 Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir ekki rétt að hún hafi skipt um skoðun varðandi breytingar á kvótakerfinu. Hún segir Björn Val Gíslason, þingmann vinstri grænna missilja þau orð sem hún lét falla í viðtali við Viðskiptablaðið fyrir skömmu. Í viðtalinu sagði Ólöf: „Ég er sjálf á því að það sé algjör óþarfi að breyta kerfinu og að það eigi að láta sjávarútveginn í friði, ekki síst á tímum þegar rekstrarumhverfið er gott eins og víða er núna í sjávarútvegi." Björn Valur, sagði á bloggsíðu sinni, að með þessu hafi Sjálfstæðisflokkurinn sagt sig frá þeirri sátt sem var í sjónmáli um sjávarútveginn og kosið ófrið í stað breiðrar samstöðu. Ólöf segir Björn Val rangtúlka hennar orð. Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið hluti af þeim þverpólitíska hóp sem falið var að endurskoða lög um stjórn fiskveiða. Fulltrú flokksins, Einar Kristinn Guðfinnsson, hafi stutt þá niðurstöðu sem hópurinn lagði til. „Það sem ég átti við var að mér finnst ekki skynsamlegt að kollvarpa þessu kerfi sem hefur reynst okkur efnahagslega hagkvæmt," segir Ólöf. Það sé hægt að gera breytingar innan kerfis þó kerfinu sjálfu sé ekki umbylt. „Sjálfstæðisflokkurinn stendur bak við niðurstöður hópsins heils hugar og á því hefur ekki orðið nein breyting. Þetta er kannski stríðni hjá Birni Val að túlka þetta svona því hann veit vel hver afstaða Sjálfstæðisflokksins er."Hér má lesa greinina eftir Björn Val.
Mest lesið Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Innlent Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Innlent Walz hjólaði í Trump og Vance á fyrsta kosningafundinum í gær Erlent Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Innlent Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma Innlent Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Innlent „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Innlent Höfuðpaurinn á bakvið árásirnar á Ísrael nýr pólitískur leiðtogi Hamas Erlent Gabbútköll skapi mjög alvarlega stöðu fyrir þyrlusveitina Innlent Þorvaldur Halldórsson látinn Innlent Fleiri fréttir Grafalvarlegt mál og viðkomandi hvattur til að gefa sig fram Lokað vegna linnulausrar rigningar Segir líforkuver risastórt skref í átt að matvælaöryggi Þorvaldur Halldórsson látinn „Það er greinilega bara eitthvað djók að nauðga“ Gabbútköll skapi mjög alvarlega stöðu fyrir þyrlusveitina Sex vilja stýra Jafnréttisstofu Falsútköll, hvalreki og vígreift varaforsetaefni Hvalur strandaði við Þorlákshöfn Piltar undir sakhæfisaldri á bak við skemmdarverkin Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Fjögurra daga hraustur drengur hætti skyndilega að anda Enn rólegt á Reykjanesskaga þótt gosið gæti á hverri stundu Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Sjá meira