Ríkisstjórnin samþykkir 16 verkefni á Vestfjörðum 5. apríl 2011 16:43 MYND/Rósa
Á ríkisstjórnarfundi sem haldinn var á Ísafirði í dag voru samþykkt 16 verkefni er snúa að eflingu byggðar og atvinnusköpun í landshlutanum. Að því er fram kemur í tilkynningu hafa verkefnin verið undirbúin í samvinnu allra ráðuneyta og í samráði við heimamenn. Andvirði verkefnanna er um 5,4 milljarðar króna. „Verkefnin snúa m.a. að menntun, velferð, umhverfismálum og auknum framkvæmdum í vegagerð og snjóflóðavörnum. Ætlunin er að fylgja verkefnunum eftir á samráðsvettvangi stjórnvalda og sveitarfélaga með það að markmiði að ábyrgð þeirra færist í auknum mæli heim í hérað. Sú vinna tengist gerð sóknaráætlana landshluta og markmiðum sem sett eru fram í stefnumarkandi skjali stjórnvalda, Ísland 2020.“ Þá segir að fyrir ríkisstjórnarfundinn hafi ríkisstjórnin heimsótt Háskólasetur Vestfjarða og kynnti sér starfsemi mennta-, atvinnuþróunar- og rannsóknastofnana á svæðinu. „Þá fundaði ríkisstjórnin jafnframt með sveitarstjórnarfólki af svæðinu þar sem verkefnin voru kynnt og rædd. Orkumál, flutningskostnaður og samgöngumál voru mikið rædd á fundinum. Með fundi sínum og þeim aðgerðum sem þar voru kynntar vilja stjórnvöld senda skýr skilaboð um að byggð á Vestfjörðum verður varin.“Verkefnin eru eftirfarandi: 1. Samstarf háskóla-, þekkingar- og fræðasetra á Vestfjörðum Tveggja ára þróunar- og uppbyggingarverkefni í menntamálum og rannsóknum. Stefnt verði að því að efla mannauð, samþætta og styrkja grunnstoðir og vinna að nýsköpun. Ráðnir verða tveir verkefnisstjórar. Verkefnahópur mun verða skipaður til að stýra verkefninu sem vinnur með verkefnastjórunum. 2. Tryggt verði áframhaldandi gott framboð á námi á framhaldsskólastigi á Vestfjörðum Tryggður verði áframhaldandi rekstur framhaldsdeildar Fjölbrautaskóla Snæfellinga á Patreksfirði auk þess sem stoðir Menntaskólans á Ísafirði verði styrktar. 3. Átaksverkefni á ýmsum sviðum, vinnumarkaðsúrræði Sett verða upp átaksverkefni innan Vinnumálastofnunar á Ísafirði, með áherslu á störf á Flateyri sem veita 10 manns vinnu í 3-5 mánuði. 4. Skráning gagna fyrir Þjóðskjalasafn Íslands Stöðugildum við skráningu fjölgað úr þrem í fjögur. 5. Aukaframlag til Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða Bætt verði við átta fræðslunámskeiðum á Flateyri á vorönn 2011. Um er að ræða 60 kennslustunda námskeið, sex fyrir útlendinga og tvö fyrir Íslendinga. 6. Látrabjargsstofa Sett verður á fót Látrabjargsstofa (Látrastofa). Þar starfi heilsárs sérfræðingur sem hefur umsjón og eftirlit með svæðinu sem kennt er við Látrabjarg - Rauðasand. 7. Starfsemi Fjölmenningarseturs á Vestfjörðum verði tryggð Starfsemi Fjölmenningarseturs verður tryggð með löggjöf um aðlögun innflytjenda og verður gerð að stofnun sem heyrir undir velferðarráðuneytið. 8. Öldrunarþjónusta, samstarf, heimahjúkrun o.fl Ráðist verður í samstarfsverkefni um öldrunarþjónustu einkum á Flateyri. 9. Öldrunarheimilið Barmahlíð, Reykhólasveit Starfsemi varin og rýmum ekki fækkað. 10. Samstarf um byggingu hjúkrunarheimilis á Ísafirði og endurbyggingu hjúkrunarheimilis í Bolungarvík skoðað m.t.t. leiguleiðar. 11. Raforkumál Samráðsvettvangur stjórnvalda og sveitarfélaga á Vestfjörðum rýnir skýrslu um „Orkuöryggi á Vestfjörðum - Áhrif á samkeppnisstöðu og atvinnuþróun" og fylgir eftir með aðgerðum til úrbóta. 12. Melrakkasetur Undirstöður Melrakkasetur Íslands á Súðavík tryggðar með þjónustusamningi. 13. Húshitunarkostnaður Unnið verður með samtökum sveitarfélaga á köldum svæðum að lækkun og jöfnun húshitunarkostnaðar. 14. Flutningskostnaður Sett verður fram áætlun um jöfnun flutningskostnaðar innan ramma nýrrar efnahagsáætlunar. Tillögur liggi fyrir við fyrstu endurskoðun áætlunarinnar í haust.Áætlaður kostnaður við liði 1-14 er allt að 102 milljónir króna. 15. Ofanflóðavarnir á Vestfjörðum Undirbúningi framkvæmda vegna tveggja verkefna við ofanflóðavarnir hraðað þannig að framkvæmdir geti hafist vorið 2012. Annars vegar varnir undir Gleiðarhjalla á Ísafirði og hins vegar gerð varnargarðs á Patreksfirði. Verkefnin fela í sér u.þ.b. 70 ársverk. Áætlaður kostnaður við lið 15 er 1 ma. króna. 16. Margvísleg verkefni í vegagerð á VestfjörðumI. Vegaframkvæmdir á Vestfjörðum, samþykkt á samgönguáætlun Nýbyggingar: · Vestfjarðavegur um Skálanes, · Vestfjarðavegur Eiði-Þverá, · Strandavegur í Steingrímsfirði.II. Aðrar vegaframkvæmdir á Vestfjörðum · Til viðbótar við þau verkefni sem eru á samgönguáætlun verður ráðist í ný verkefni samkvæmt faglegu mati Vegagerðarinnar fyrir 350 milljónir króna. Mat Vegagerðarinnar ræðst af því hver verkefnanna séu best til þess fallin að auka atvinnu, bæta öryggi vegfaraenda og bæta ástand vegamála á Vestfjörðum almennt. · Einnig munu stjórnvöld leggja á það sérstaka áherslu, á fyrirhuguðum samráðsvettvangi með heimamönnum, að fara yfir möguleika á sáttaleið og leita leiða til þess að flýta framkvæmdum við Vestfjarðaveg um Barðaströnd.Áætlaður kostnaður við lið 16 er 4.3 ma. króna. Heildarkostnaður við alla liði er áætlaður 5.4 ma. króna, af því er tæpur 1.5 ma króna nýtt fjármagn.
Mest lesið Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Innlent Veislan tekin af dagskrá FM957 Innlent Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Innlent Trump vill mæta Harris þrisvar í kappræðum Erlent Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Innlent Árni Þórður er látinn Innlent Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Innlent Segist niðurlægður með 415 krónur í tímakaup Innlent Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Erlent Fleiri fréttir Blöskrar græðgi á kostnað gæða Þakka skilningsríkum foreldrum og gætu leitað réttar síns Eðlilegt að setja hálfan milljarð í framkvæmdir í Grindavík Dæla vatni úr Bláa lóninu á margföldum krafti Ekki boðlegt að börn séu í „gettó-umhverfi“ Veislan tekin af dagskrá FM957 „Gettó“ í Ármúla og hryðjuverkaógnin í Vínarborg Setja 470 milljónir í viðgerð í Grindavík Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Dagbjört hafi leynt mikilvægum upplýsingum „Það má alveg stríða pínulítið“ Eldur í einu herbergi í íbúðarhúsnæði á Hallgerðargötu „Landsliðið“ búið að skila tillögu og von á vímuefnastefnu Ærin verkefni framundan á þingi og voðaverki afstýrt í Vín „Sorglegt og alvarlegt“ hvernig málum er komið í grunnskólum „Við mætum þessu með því að stækka fánann“ Regnbogafáninn í Hveragerði útbíaður hatursorðræðu Óboðlegt að fangaverðir eigi í hættu að stórslasast í vinnunni „Maður er bara einhvern veginn að vega salt“ Vill „alvöru úttekt“ á „alvöru úttektum“ Menn hugsi sig tvisvar um áður en þeir teppi neyðarviðbragð landsins Alvarleg gabbútköll, nýtt neyslurými og bongóblíða í bænum Hvalurinn er laus: „Þetta er kraftaverki næst“ „Alvöru úttekt“ verði gerð á máli Brákarborgar Enginn handtekinn í sérsveitaraðgerð í Vogahverfi Árni Þórður er látinn Grunaður um heimilisofbeldi skömmu fyrir meint manndráp Ummerki eftir hlaupið stóra í sigkötlum í Mýrdalsjökli Nýtt neyslurými opnar í Borgartúni: Skoða að bjóða gestum upp á vímuefni til skaðaminnkunar Fann skotfæri úr fórum nasista á Hlíðarfjalli Sjá meira