Innlent

Tjónstilkynningar séu ávallt meðferðis

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill hvetja ökumenn til þess að hafa tjónstilkynningar ávallt meðferðis í bílum sínum komi til óhapps. Að sögn lögreglu er talsvert um að ökumenn sem lent hafa í umferðaróhappi kalli til lögreglu sökum þess að tjónstilkynningareyðublað tryggingafélaganna er ekki meðferðis.

„Lögreglan hvetur af þeim sökum ökumenn til að aka með gætni svo eyðublöðin þurfi ekki notkunar við en að öðrum kosti hafa þau tiltæk í ökutækjum sínum," segir í tilkynningu. Eyðublöðin má nálgast hjá tryggingafélögum, á bensínstöðvum, skoðunarstöðvum ökutækja, flestum bílasölum og á lögreglustöðvum í umdæminu.

Eyðublöðin má einnig nálgast á Vísi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×