Innlent

Lögreglan leitar enn að vopnuðum ræningja

Lögregla leitar enn að manni, líklega um tvítugt, sem otaði hnífi að stafsfólki í söluturninum Hraunbergi í Breiðholti í gærkvöldi, þar sem margmenni var innandyra, og heimtaði peninga úr afgreiðslukassanum.

Starfsmaður afhenti honum smámynt og hélt ræninginn með hana út í nóttina. Hann var grímuklæddur og hefur lögregla ekki enn borið kennsl á hann af upptökum úr eftirlitsmyndavélum í söluturninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×