Lífið

Mariah Carey eignast tvíbura

Mariah Carey og Nick Cannon, eiginmaður hennar, eignuðust tvíbura um helgina.
Mariah Carey og Nick Cannon, eiginmaður hennar, eignuðust tvíbura um helgina.
Söngkonan Mariah Carey eignaðist tvíbura um helgina, en þeir fæddust á þriggja ára brúðkaupsafmæli hennar og Nicks Cannon. Þau nýttu tækifærið og endurnýjuðu brúðkaupsheiti sín og hver annar en prestur fræga fólksins, Al Sharpton, sá um það. Hallelúja!

Hjónakornin hafa ekki tjáð sig um nýfæddu tvíburana, en Sharpton lét nokkur góð orð falla á Twitter um helgina. „Ég er hérna hjá Mariuh Carey og Nick Cannon,“ skrifaði hann. „Hún eignaðist tvíbura í gær á þriðja brúðkaupsafmælinu þeirra. Ég stýrð bæn með þeim. Ég endurnýjaði líka brúðkaupsheitin hennar og blessaði tvíburana.

María lítur frábærlega út og börnin eru falleg. Ég er svo hrærður að sjá hversu einlæg andleg skuldbinding þeirra er. Þau hafa ekki látið velgengnina hrinda sér frá Guði. Ég er svo stoltur.“ Amen.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.