Elvar Már: Skotin voru að detta í dag Boði Logason í Ljónagryfjunni skrifar 17. október 2011 21:55 "
Þetta var bara liðssigur," sagði Elvar Már Friðriksson, 17 ára leikmaður Njarðvíkur, eftir sigur á Haukum, 107 – 91 í Ljónagryfjunni í kvöld. Elvar Már átti frábæran leik og setti nokkra mikilvæga þrista ofan í sem og að stjórna liði sínu eins og herforingi. Það var ekki að sjá leik hans að hann væri að stíga sín fyrstu skref í deild þeirra bestu. Ásamt honum var annar ungur strákur, Ólafur Helgi Jónsson, sem átti skínandi góðan leik og skoraði 18 stig. "Þetta er annar leikurinn minn í efstu deild og skotin voru að detta í dag. Þegar þeir fóru í svæði byrjuðum við að negla þessum skotum og þau fóru niður hjá okkur. Það var jafnvægi á þessu – við vorum að skora inn í teig og líka fyrir utan teig," sagði Elvar Már eftir leikinn í kvöld. En hvernig er að spila í efstu deild eftir að hafa einungis spilað með yngri flokkunum? "Þetta eru mikil viðbrigði en þetta er miklu skemmtilegra. Við ætlum að halda áfram á sigurbraut," sagði hann en Njarðvíkingar eru búnir að vinna fyrstu tvo leikina á þessu tímabili. Hann segir það ekkert mál að hafa pabba sinn á hliðarlínunni en Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkur er faðir Elvars. "Það eru kostir og gallar við þetta," sagði hann. "En fleiri kostir samt," sagði þessi ungi efnilegi leikmaður brosandi að lokum.
Tengdar fréttir Umfjöllun: Njarðvíkingar sýndu klærnar í Ljónagryfjunni Njarðvík byrjar tímabilið í Iceland Express-deild karla vel en í kvöld vann liðið sigur á Haukum, 107-91. Njarðvíkingum var reyndar spáð falli úr deildinni fyrir tímabilið en þeir hafa svarað því með því að vinna fyrstu tvo leiki tímabilsins. 17. október 2011 21:20 Sævar: Það var sama hvar og hvenær þeir skutu - það fór allt ofan í “Það var aðallega varnarleikurinn - hann var bara skelfilegur það er ekkert annað,” sagði Sævar Ingi Haraldsson leikmaður Hauka eftir 107 – 91 tap gegn Njarðvík í Ljónagryfjunni í kvöld. 17. október 2011 21:47 Friðrik: Við erum að hlaupa af okkur frumsýningarstressið “Við spiluðum bara mjög vel í dag, sérstaklega sóknarlega. Það voru allir í banastuði og menn voru bara vel stemmdir,” sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga eftir sannfærandi sigur á Haukum í Ljónagryfjunni 107 – 91 í kvöld. 17. október 2011 21:18 Pétur: Erum að fá á okkur alltof mikið af stigum “Við byrjuðum illa í þriðja leikhluta eftir að hafa verið undir og þeir komust fljótt í 20 stiga forskot og héldu því einhvern veginn allan leikinn,” sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari Hauka eftir 107 – 91 tap í Ljónagryfjunni í kvöld. 17. október 2011 21:41 Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Viktor Gísli öflugur gegn PSG Handbolti Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Engin vandræði þrátt fyrir að vera manni færri nær allan leikinn Fótbolti Dagskráin í dag: Körfuboltakvöld, Karólína Lea og mun meira Sport Arsenal sneri dæminu sér í vil Fótbolti Fleiri fréttir Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Sjá meira
Umfjöllun: Njarðvíkingar sýndu klærnar í Ljónagryfjunni Njarðvík byrjar tímabilið í Iceland Express-deild karla vel en í kvöld vann liðið sigur á Haukum, 107-91. Njarðvíkingum var reyndar spáð falli úr deildinni fyrir tímabilið en þeir hafa svarað því með því að vinna fyrstu tvo leiki tímabilsins. 17. október 2011 21:20
Sævar: Það var sama hvar og hvenær þeir skutu - það fór allt ofan í “Það var aðallega varnarleikurinn - hann var bara skelfilegur það er ekkert annað,” sagði Sævar Ingi Haraldsson leikmaður Hauka eftir 107 – 91 tap gegn Njarðvík í Ljónagryfjunni í kvöld. 17. október 2011 21:47
Friðrik: Við erum að hlaupa af okkur frumsýningarstressið “Við spiluðum bara mjög vel í dag, sérstaklega sóknarlega. Það voru allir í banastuði og menn voru bara vel stemmdir,” sagði Friðrik Ragnarsson, þjálfari Njarðvíkinga eftir sannfærandi sigur á Haukum í Ljónagryfjunni 107 – 91 í kvöld. 17. október 2011 21:18
Pétur: Erum að fá á okkur alltof mikið af stigum “Við byrjuðum illa í þriðja leikhluta eftir að hafa verið undir og þeir komust fljótt í 20 stiga forskot og héldu því einhvern veginn allan leikinn,” sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari Hauka eftir 107 – 91 tap í Ljónagryfjunni í kvöld. 17. október 2011 21:41