Gagnrýni

Dungen á Iceland Airwaves: Vonbrigði

Dungen. Hafnarhúsið.



Lélegur hljómur Hafnarhússins eyðilagði lítið fyrir HAM, en fór illa með sænsku hipparokkarana í Dungen. Tónleikar hljómsveitarinnar byggðust mikið upp á spunakenndum hljóðfæraleik, en erfitt reyndist að greina tónlistina þar sem bassinn virtist hafa skitið yfir tónleikana. Svo lélegur var hljómurinn.

Hápunktur tónleikanna var eflaust smellurinn Panda af plötunni Ta Det Lugnt (sjá myndband fyrir ofan), en þrátt fyrir ótvíræða hæfileika meðlima Dungen þá stóðu tónleikarnir ekki undir væntingum. - afb








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.