RIFF bíður eftir ríkisstyrk 21. janúar 2011 20:30 Jim Jarmusch fékk heiðursverðlaun RIFF á hátíðinni í haust og afhenti Ólafur Ragnar Grímsson þau á Bessastöðum. Mynd/Stefán „
Þetta er bara bull. Hún er ekki búin að slátra hátíðinni," segir Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF. Ritstjórinn fyrrverandi og bloggarinn Jónas Kristjánsson skrifaði á síðu sinni að hátíðin yrði ekki haldin á þessu ári og að Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefði slátrað henni með því að undirrita ekki meðmælabréf með styrkbeiðni til Evrópusambandsins. Hrönn vísar þessu á bug og segir að hátíðin verði haldin í haust. RIFF hefur þegar fengið vilyrði hjá Reykjavíkurborg fyrir átta milljón króna styrk eins og undanfarin ár. Ríkið hefur einnig samþykkt að styrkja hátíðina áfram en ekki er ljóst hversu há upphæðin verður. Á síðasta ári nam styrkurinn átta milljónum króna. Viðræðurnar við ríkið hafa tekið töluverðan tíma en málið mun skýrast á allra næstu dögum.Hrönn segir að hátíðin verði haldin í ár. Mynd/StefánRIFF hefur einnig sótt um svokallaðan Media-styrk til Evrópusambandins og fær svar við beiðninni í febrúar. Hátíðin hefur einu sinni fengið Media-styrk, eða árið 2009, og nam hann sex og hálfri milljón. Hrönn segir umfang næstu RIFF-hátíðar, sem verður sú áttunda í röðinni, ráðast af því hversu háa styrki hún fær. „Grunnurinn undir starfseminni hefur verið þessi styrkur frá Reykjavíkurborg og menntamálaráðuneytinu. Við bindum miklar vonir við að fá áfram svipaða upphæð. Ég er bjartsýn á að ráðherra taki skynsamlega ákvörðun í þessu máli," segir hún og fullyrðir að peningurinn sem hafi verið lagður í hátíðina komi allur til baka og rúmlega það. - fb
Mest lesið Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Innlent Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Innlent „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Innlent Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Innlent Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Innlent Sagðir hafa lagt á ráðin um skemmdarverkin á Nord Stream í ölæði Erlent Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Innlent Gena Rowlands er látin Erlent Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Innlent Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu Innlent Fleiri fréttir Skilur gagnrýni á háa orlofsgreiðslu „Ekki sniðugt að vera með fólk sofandi þarna inni“ Flytur út frá foreldrum sínum þökk sé hundaheppni Beðið eftir gosi, orlofsgreiðslur og ósáttir verkfræðingar Fjórir berjast um embætti umboðsmanns Alþingis Fundu erfðabreytileika sem stórauka áhættu á Parkinsons „Týpísk pólitík að tefja málið“ Afhentu bæjarstjóra undirskriftalista vegna Coda Terminal Leggur til að hjólhýsabyggðin verði við Rauðavatn eða í Gufunesi Verkfræðingar segja vald SA „óeðlilega mikið“ Fastur á leigumarkaði með verðlaust hús í Grindavík Halla Hrund sótti ekki um nýja forstjórastöðu Fundu ferðamennina um hálf eitt í nótt Ekið heim eftir „smá uppsteyt“ í miðborginni Allt með kyrrum kjörum þrátt fyrir reyk og ljóstýru Gaukarnir gista og fá snyrtingu Leita að göngumanni í Kerlingarfjöllum Óttast um velferð íbúa og höfðar til skynsemi þeirra Tryggja þurfi að vindorkan haldist í höndum þjóðarinnar Bótagreiðslur til Íslendinga almennt hærri Á annað hundrað kvenna bíða eftir minni brjóstum Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Gripin með óhrein peningabúnt í Leifsstöð Stíga annað stórt skref að virkjun við Búrfell Óvenjulegur grafreitur reistur á Seltjarnarnesi Eyddu sprengju úr seinni heimsstyrjöldinni í Hlíðarfjalli Halldór Bragason lést í eldsvoðanum Enginn vindmyllugarður án bættra vega Orsök veikindanna enn á huldu Sjá meira