Fram er komið í úrslit deildarbikars HSÍ, Flugfélags Íslands bikarsins, eftir öruggan ellefu marka sigur, 36-25, á Stjörnunni í dag.
Sigurbjörg Jóhannsdóttir og Stella Sigurðardóttir skoruðu báðar sjö mörk fyrir Fram í dag og þær Sunna Jónsdóttir og Elísabet Gunnarsdóttir skoruðu sex mörk.
Jóna Margrét Ragnarsdóttir var allt í öllu í liði Stjörnunnar með níu mörk og Hanna Guðrún Stefánsdóttir skoraði fimm.
Fram mætir annað hvort Val eða HK í úrslitaleiknum á morgun.
Auðvelt hjá Fram gegn Stjörnunni

Mest lesið

Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið
Enski boltinn


Víkingar skipta um gír
Íslenski boltinn


Gera grín að Jürgen Klopp
Fótbolti


„Getum gengið stoltar frá borði“
Handbolti


