Innlent

Ók á dráttarvél á fjölfarinni umferðargötu

Mynd tengist frétt ekki beint.
Mynd tengist frétt ekki beint.
Lögreglan stöðvaði karl á miðjum aldri á fjölfarinni umferðargötu í Reykjavík klukkan hálf níu í morgun en hann ók dráttarvél og fór eðlilega hægt yfir.

Í tilkynningu frá lögreglu segir að þetta hafi ollið nokkrum vandræðum og tafði fyrir umferð en maðurinn var látinn leggja dráttarvélinni við vegkanntinn.

Honum var svo leyft að halda för sinni áfram eftir klukkan níu enda eru allvíða sérstakar takmarkanir vegna hægfara ökutækja.

Á umræddum vegi er t.d. umferð hægfara dráttarvéla, torfærutækja á hjólum og vinnuvéla bönnuð á tilteknum tíma, bæði á morgnana og síðdegis.

Það er jafnframt auglýst skilmerkilega á umferðarmerkjum og átti svo við í þessu tilfelli, segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×