Innlent

Landlæknir varar við fegrunaraðgerðum í heimahúsum

Konan er sögð stunda fegrunaraðgerðir á heimili sínu.
Konan er sögð stunda fegrunaraðgerðir á heimili sínu.
Landlæknir hvetur almenning til að vera á varðbergi gagnvart einstaklingum sem bjóða þjónustu sem augljóst má vera að stenst ekki þær lágmarkskröfur sem fólk að öllu jöfnu gerir til heilbrigðiskerfisins og starfsfólks hennar í frétt sem birtist á heimasíðu Landlæknaembættisins um fegrunaraðgerðir á heimili konu í Kópavogi.

Málið snýst um erlenda konu sem er sögð bjóða upp á bótox á heimili sínu í Kópavogi auk annarra fegurðaraðgerða.

Í frétt Landlæknaembættisins kemur fram að lögum samkvæmt beri landlækni að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustu og heilbrigðisstarfsmönnum. Sú starfsemi, sem hefur verið til umfjöllunar, fellur því ekki undir eftirlit embættisins og hefur verið veitt af einstaklingi án tilskilinna leyfa.

Svo segir í fréttinni að einstaklingar, sem sækja slíka þjónustu, gera það því á eigin ábyrgð. Sérstaklega er mikilvægt fyrir þá að huga að gæðum þjónustunnar, að hreinlæti sé tryggt og að sá sem veitir hana hafi nauðsynleg leyfi til starfseminnar.

Það efni sem notað er í bótox-fegrunaraðgerðir inniheldur lítið magn bótulínum, sem er þekkt eiturefni sem lamar vöðva og fjarlægir hrukkur tímabundið. Efnið getur haft hættulegar aukaverkanir ef það er ekki notað af fagfólki með þekkingu á lyfinu og verkun þess.

Lyfið er því háð markaðsleyfi sem Lyfjastofnun gefur út og innflutningur því ekki leyfilegur nema með sérstöku leyfi hennar.

Vísir greindi frá því á mánudaginn að lögreglan væri byrjuð að rannsaka málið vegna gruns um ólöglegt athæfi.


Tengdar fréttir

Lögreglan byrjuð að rannsaka bótox-konuna

Mál bótox-konunnar í Kópavogi hefur verið tekið til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu vegna gruns um lögbrot. Þetta staðfestir Friðrik Smári Björgvinsson, yfirlögregluþjónn.

Botox-kona vann sem nektardansmær

"Það eru fimm sex ár síðan hún vann hjá mér,“ segir Ásgeir Þór Davíðsson, eigandi Goldfingers, en kona sem er sögð stunda fegrunaraðgerðir í íbúð sinni í Hjallahverfinu í Kópavogi, vann sem nektardansmær á Goldfinger.

Landlæknir skoðar starfssemi Bótox-konunnar

"Við höfum verið að fylgjast með þessu máli í fjölmiðlum,“ segir Geir Gunnlaugsson landlæknir um sérkennilegt mál þar sem kona virðist bjóða upp á fegrunaraðgerðir á heimili sínu í Kópavogi. Ekki er um skráða heilbrigðisstarfsemi að ræða hjá konunni, því hefur Landlæknir ekki beint eftirlitshlutverk með starfseminni, þar sem embættið hefur eftirlitsskyldur gagnvart almennri heilbrigðisstarfsemi.

Nágrannar Botox-konunnar: Viðskiptavinirnir ungar erlendar konur

"Það sem ég hef orðið var við er mikill straumur af ungum erlendum konum til hennar,“ segir einn nágranni botox-konunnar í Hjallahverfinu í Kópavogi. DV greindi frá því í morgun að kona af erlendu bergi brotnu stundaði lýtalækningar í íbúð sinni í Kópavogi. Konan býr í fjölbýlishúsi í Hjallahverfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×