Innlent

Ellefu ráðnir án auglýsinga

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra svaraði fyrirspurn Eyglóar. Mynd/ Stefán.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra svaraði fyrirspurn Eyglóar. Mynd/ Stefán.
Ellefu manns hafa verið ráðnir án auglýsinga í tímabundin störf hjá ráðuneytunum frá því í ársbyrjun 2009. Ráðið hefur verið í 27 tímabundnar stöður á þessu tímabili. Þetta kemur fram í svari Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Eyglóar Harðardóttur. Flestir þeirra, eða sjö, hafa verið ráðnir í störf hjá velferðarráðuneytinu. Næstflestir, fjórir, voru ráðnir í störf hjá utanríkisráðuneytinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×