Veiði

Lagt til að alfriða stórlax í veiðiánum sumarið 2011

Stórlaxi sleppt aftur í ánna
Líkt og í fyrra, þá leggur Veiðimálastofnun til algjört bann við drápi á stórlaxi í sumar. Stangaveiðimenn og veiðifélög eru hvött til að fylgja þessum tillögum. Á heimasíðu stofnunarinnar segir;

Nýtt laxveiðitímabil er að hefjast. Fyrstu laxarnir sem veiðast á sumrin eru stórlaxar sem eru 2 ár í sjó. Slíkum laxi hefur fækkað mikið. Við viljum halda í þennan erfðaþátt hjá laxinum og því hefur Veiðimálastofnun hvatt eindregið til að slíkur lax sé ekki drepinn. Þá hefur stofnunin lagt til bann við stórlaxadrápi á meðan svona er ástatt fyrir laxinum. Því hvetjum við alla bæði stangveiðimenn og veiðifélög til að tryggja að stórlax verði ekki drepinn nú í byrjun veiðisumars sem og í allt sumar. Veiðigleðin verður meiri að vita af stórlaxinum í ánni og að hann hrygni í haust og skili þar með erfðum sínum til komandi kynslóða. Sleppum öllum laxi sem er 70 cm eða lengri eða 3,5 kg og þyngri.


 

Birt með góðfúslegu leyfi SVFR










×