Körfubolti

Páll Axel ekki með Grindavík í úrslitaleiknum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Páll Axel Vilbergsson.
Páll Axel Vilbergsson. Mynd/Stefán
Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson getur ekki spilað úrslitaleik Lengjubikars karla sem fer fram þessa stundina í DHl-höllinni í Vesturbænum.

Páll Axel meiddist í fyrri hálfleik í undanúrslitaleiknum á móti Þór í gær og spilaði ekkert í seinni hálfleik. Páll Axel er nú bara í borgaralegum fötum fyrir aftan bekk Grindavíkurliðsins.

Keflvíkingar hafa hinsvegar endurheimt Magnús Þór Gunnarsson sem er í byrjunarliðinu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×