Innlent

Fór á brúarstólpa og svo á bíl

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Umferðarslys varð á Reykjanesbraut á móts við Kaldárselsveg um klukkan tuttugu mínútur í tíu í kvöld. Slysið varð með þeim hætti að bifreið var ekið á brúarstólpa og síðan á annan bíl. Ökumennirnir voru báðir einir í bílunum. Þeir voru báðir fluttir á slysadeild til skoðunar en meiðsli þeirra munu ekki hafa verið alvarleg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×